Þegar mér leiðist og ég hef nákvæmlega ekkert betra að gera en
að hanga í tölvunni þá þykir mér alveg afskaplega gaman að skoða
vísindavefinn og wikipedia. Í þetta skiptið varð wikipedia fyrir
valinu. Af einskærri forvitni sló ég inn nafnið mitt og eitt leiddi
af öðru og fyrr en var var ég farin að velta mér upp úr íslenskum
mannanöfnum.
Ég komst að því að nafnið Stefanía er í 125.
sæti yfir vinsælustu mannanöfnin á Íslandi. Þess má geta að listinn
er frá árinu 2005.
Á árunum 1950-2006 var 639 stúlkubörnum gefið nafnið
Stefanía sem fyrsta eiginnafn og 174 stúlkubörnum
var gefið nafnið Stefanía sem seinna
eiginnafn.
Á mínu fæðingarári, sem er 1988, fæddust 12-16
Stefaníur.
Nafnið Sólveig er í 48. sæti á fyrrnefndum
lista.
Á árunum 1950-2006 var 1150 stúlkubörnum gefið nafnið
Sólveig sem fyrsta eiginnafn og 292 stúlkubörnum
var gefið nafnið Sólveig sem seinna eiginnafn.
Árið 1988 fæddust 15-17 Sólveigar.
Nafnið Ólína er í 389. sæti á listanum.
Á árunum 1950-2006 var 165 stúlkubörnum gefið nafnið
Ólína sem fyrra eiginnafn og 52 stúlkubörnum var
gefið nafnið Ólína sem seinna eiginnafn.
Árið 1988 fæddust 3-4 Ólínur.
Efst á listanum var að sjálfsögðu karlmannsnafnið Jón.
Það er því ljóst að Sólveig ber vinsælasta
nafnið af okkur vinkonunum. Næst kemur Stefanía og
Ólína rekur lestina.
Á enska Wikipedia fann ég þessar upplýsingar um nöfnin:
Stephanie (já Solla hlæðu bara) kemur af gríska nafninu
Stephanos sem þýðir "kóróna". Á frönsku er nafnið skrifað
Stéphanie. Á ensku eru nokkrar útfærslur en þær eru Stephanie,
Stephenie, Stefanie og Stephany. Á spænsku er nafnið skrifað
Estefanía og á Ítölsku er það skrifað Stefania.
Stefania er líka stofntegund trjáfroska
Sólveig þýðir samkvæmt wikipedia "sterk sól"
þar sem sól=sun og veig=strength, þ.e. "sterk sól". Algengasta form
nafnsins er Solveig en á rússnesku er nafnið skrifað Solveiga og á
hinum Norðurlöndunum er það skrifað ýmist Solvei eða Solveij.
Nafnið Ólína, því miður, skilaði engum
niðurstöðum.